Söngkonan Madonna gaf lagið Into the Groove út í september 1985. Rúmum 40 árum síðar fór lagið óvænt á topp 20 á breska vinsældalistanum, hvernig stendur á því?Ástæðu þess, eins og svo oft þessa dagana, má leita á samfélagsmiðlum. Þetta er áhrifavaldurinn og streymarinn Gymskin, eða Jack. Í myndbandinu er hann í beinu streymi þar sem hann heyrir lagið Into the Groove út undan sér og segir myndavélinni að elta lagið. Þegar hann finnur svo staðinn þar sem verið er að spila lagið fer hann að dansa, eða eins og hann segir, sleppir öxlunum.Myndbandið fór eins og eldur í sinu á TikTok og á skömmum tíma var það á allra vörum.Áhrifavaldar og fyrirtæki fóru að nota hljóðið í TikTokinu hjá Gymskin og gera sína útgáfu af því. KSI er breskur áhrifavaldur og frumkvöðull. Hann sleppti öxlunum, eins og G