Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hlutabréfaverð í Kviku hríðlækkar

Hlutabréfaverð í Kviku hefur lækkað um tæp tólf prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Í gærkvöld var tilkynnt um að ekkert yrði af samruna Kviku og Arion banka.Áhrifin á hlutabréfaverð fyrirtækjanna tveggja voru misjöfn. Verð bréfa í Kviku hríðlækkaði en verðmæti hlutabréfa í Arion banka jókst um tæpt eitt og hálft prósent.Fulltrúar Arion banka og Kviku ræddu við Samkeppniseftirlitið í gær. Að afstöðnum þeim fundi sögðu stjórnendur fyrirtækjanna að ekki gæti orðið af samrunanum vegna afstöðu stofnunarinnar.Ekki verður af samruna Kviku og Arion banka.RÚV / Ragnar Visage
Hlutabréfaverð í Kviku hríðlækkar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta