84% landsmanna hafa meiri áhyggjur en áður af þróun alþjóðamála. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun Maskínu fyrir utanríkisráðuneytið. Þar er spurt um mat almennings á ýmsum alþjóðamálum og samskiptum Íslands við útlönd.Þetta er fimmta árið í röð sem spurt er hvort fólk hafi áhyggjur af þróun alþjóðamála. Þegar fyrst var spurt að því í maí 2022 lýstu 60% miklum áhyggjum en átta prósent litlum eða engum. Nú er 71% mjög áhyggjufullt en sex prósent lítt eða ekkert.Flestir lýsa meiri áhyggjum en áður. 84 prósent segjast hafa meiri áhyggjur en fyrir ári, en hlutfallið var 76% 2022. Aðeins tvö prósent hafa minni áhyggjur en fyrir ári.Maður við rústir húss í Tehran, höfuðborg Írans.EPA / ABEDIN TAHERKENAREH