Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir kennara hafa setið eftir með spurningar eftir að mennta- og barnamálaráðherra boðaði breytingar á einkunnakerfi grunnskóla á þingi KÍ í gær. „Vonbrigðin liggja í því að við viljum hafa samtalið áður en stóru ákvarðanirnar eru teknar,“ segir Magnús Þór.Ingu Sæland strauk kennurum öfugt þegar hún sagði að hún teldi eðlilegt að nota tölustafi í einkunnagjöf en ekki bókstafi eða önnur form sem gætu verið torskilin. „Ég veit að það er umdeilt í ykkar hópi en mér finnst það skipta máli að þetta sé í samræmi við það sem meirihluti foreldra og samfélagið vill,“ sagði Inga og vísaði þar í nýlega skoðanakönnun.„Við höfum svolítið verið að upplifa það síðustu misserin að það sé verið að taka skyndiákvarðanir þar sem er hent inn á svið sem þa