Joy Harmon, sem verður eilíflega þekkt fyrir litla rullu sína í klassíkinni Cool Hand Luke með Paul Newman, er látin 87 ára að aldri. Harmon lék í tugum sjónvarpsþáttasería og þó nokkrum kvikmyndum á tæplega tuttugu ára leiklistarferli, starfaði svo hjá Disney Studios og rak bakarí.