„Ég er að bíða eftir strætó númer 5,“ segir Sveinn Nökkvi Guðlaugsson, sem er 21 árs og býr í Norðlingaholti.Hann er vaktstjóri hjá Bónus og þjálfar handbolta hjá HK í Kópavogi. „Nú er ég að sýna ykkur leiðina sem ég væri að fara ef ég væri að þjálfa. Það eru tvær leiðir í boði með fimmunni,“ segir hann.Það þarf að koma til móts við fólkið sem notar almenningssamgöngurnar, segir ungur maður sem er stundum rúmlega klukkutíma að komast til vinnu með strætó. Kastljós fjallar um nokkur málefni sem kosið er um í sveitarstjórnarkosningum á næstu vikum.Með fimmunni getur Sveinn Nökkvi farið í Laugardalinn og þaðan í Hörðuvallaskóla þaðan sem hann labbar í Kórinn þar sem hann er að þjálfa.Hann gæti líka farið með strætó númer fimm niður í Ártún, skipt í númer 24 sem fer í Smáralind og þaðan tekið