Icelandair sér um flug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar næstu fjögur árin og fær greidda 1,7 milljarða fyrir verkið. Samningar náðust milli flugfélagsins og Vegagerðarinnar. Samningurinn gildir frá 1. september í ár til 31. ágúst 2030. Icelandair skuldbindur sig til að fljúga minnst 452 hringferðir á ári meðan samningurinn er í gildi. Vegagerðin bauð út flug til Ísafjarðar í ársbyrjun og gerði þá ráð fyrir að kostnaðurinn yrði 1,3 milljarðar króna. Aðeins eitt tilboð barst, frá Icelandair, upp á 3,5 milljarða króna. Því tilboði hafnaði Vegagerðin en samdi að lokum við flugfélagið. Þá var búið að minnka kröfur um árlegar flugferðir um 28,5 prósent.Kveðið er á um lágmarksfjölda flugferða á viku hverri í samningnum. Sá fjöldi er misjafn eftir árstímum. Fljúga verður að lágmarki sjö sinnum í vi