Landsréttur staðfesti í fyrradag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Quang Lé og kona hans sæti farbanni til 3. júlí. Bæði eru þau grunuð um aðild að einhverju stærsta mansalsmáli Íslandssögunnar. Dómari féllst á að raunveruleg hætta væri á því að hjónin legðu á flótta undan réttvísinni ef þau sættu ekki farbanni. Vísað var til þess að konan á fjölskyldu erlendis og maðurinn dóttur. SÉR FYRIR ENDANN Á RANNSÓKNINNI Lögregla réðist til atlögu og gerði húsleit á fjölda veitingahúsa og annarra staða sem Quang Lé og eiginkona hans tengjast 5. mars 2024. Rannsóknin hefur staðið yfir síðan þá en er á lokametrunum samkvæmt gögnum sem lögregla lagði fyrir dómstóla með beiðni sinni um framlengingu á gæsluvarðhaldi. Lögregla segir að nú sjái fyrir endann á rannsókninni. Lögreglu hefur enn ekki te