„Við getum öll verið aktívistar. Að vera aktívisti þýðir bara að vilja framtíðinni vel og vera tilbúin að gera eitthvað í því,“ segir Sigrún Perla Gísladóttir arkitekt. Hún vill hugsa um arkitektúr sem afl til umbreytinga í átt að meira réttlæti, vellíðan og sjálfbærni.Sigrún Perla segir að það sé hlutverk skapandi greina að hreyfa við fólki og vonandi að reyna að breyta einhverju til hins betra. „Ég vona alla vega að arkitektúr og arkitektar séu að reyna að leggja það af mörkum,“ segir hún. „Arkitektúr er í eðli sínu aktívismi.“„Ég lærði sjálfbærniarkitektúr og hef verið virk í Ungum umhverfissinnum. Ég er stundum spurð hvernig maður nenni að vera að vasast í þessu, hvort maður verði ekki bara þunglyndur. Ég hef komist að því að maður verður það ekki.“Það sé aftur á móti gefandi að velta