Þingmenn Demókrata í neðri deild Bandaríkjaþings lögðu í gær fram ákæru gegn Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna. Þeir vilja að hann verði sviptur ráðherradómi fyrir embættisglöp.Þingmennirnir segja að hann hafi stefnt bandarískum hermönnum í hættu með stríðsrekstri án þess að Bandaríkjaþing samþykkti stríð. Hann hafi enn fremur framið stríðsglæp og vísa þingmennirnir þar til árásar á íranskan skóla þar sem 170 nemendur og kennarar voru drepnir. Hegseth er líka ákærður vegna árása á báta á Karíbahafi sem stjórnvöld segja að séu notaðir til fíkniefnasmygls.Demókratar eru í minnihluta og litlar líkur á að ákæran verði samþykkt.Pete Hegseth stríðsmálaráðherra með Donald Trump Bandaríkjaforseta í bakgrunni.EPA / YURI GRIPAS / POOL