Mjög hefur dregið úr stuðningi landsmanna við margvíslega aðstoð og stuðning íslenskra stjórnvalda við Úkraínu og Palestínu síðustu ár. Meirihlutinn er í flestum tilfellum fylgjandi áframhaldandi stuðningi en sá meirihluti hefur farið ört minnkandi.Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Maskína vinnur ár hvert fyrir utanríkisráðuneytið. FÆRRI VILJA STYÐJA ÚKRAÍNU EFNAHAGSLEGA Þeim landsmönnum sem eru hlynntir því að Ísland styðji Úkraínu í vörnum gegn Rússlandi hefur fækkað úr 82 prósentum 2023 í 65 prósent í ár. Á sama tíma hefur andstaða við slíkan stuðning aukist úr sjö prósentum í fjórtán prósent.Mjög hefur dregið úr stuðningi landsmanna við að Ísland styðji Úkraínu efnahagslega, eftir því sem liðið hefur á stríðið. 2023 voru 69 prósent hlynnt efnahagslegum stuðningi en þrettán próse