Óvenju mikið var að gera hjá Lögreglunni á Akureyri í gærkvöld og nótt miðað við miðvikudagskvöld og aðfaranótt fimmtudags. Lögreglan fór í fimmtán útköll frá klukkan sex í gærkvöld. Þar af sneru tvö útköll að því að vísa óvelkomnum gestum á brott. Einn gistir fangaklefa vegna óspekta og ölvunar. Þrátt fyrir óvenju mörg útköll voru engin meiriháttar mál.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm fyrir að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Nokkrir voru kærðir fyrir hraðakstur í Kópavogi og mældust menn á 131, 137 og 140 kílómetra hraða þar sem er 80 kílómetra hámarkshraði.Lögreglustöðin á Akureyri.RÚV / Kristófer Óli Birkisson