Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Eitthvað sem við ættum að vera að tala um“

„Við sjáum jökulís frá Sólheimajökli. Við förum á jökulinn, skoðum þennan jökulís í gegnum smásjá og svo er hann bara að bráðna í lófanum á okkur. Þetta er pínulítið brot,“ segir listakonan Íris María Leifsdóttir. Hún hefur nýtt veðrið sem drifkraft í sinni list og allt tengist þetta hringrás vatns. Undir verkinu er sungið gamalt íslenskt þjóðlag, Lóuvísur, og saman myndar þetta dáleiðandi upplifun.Hópurinn Sermit | Jöklar er nú kominn í samstarf við vísindamenn í Icelink sem rannsaka jökla á Íslandi í þeim tilgangi að sjá hvernig jöklar á Grænlandi eiga eftir að hegða sér.„Þetta er eitthvað sem við ættum að vera að tala um. Þetta er það sem er að gerast í okkar samtíma, jöklarnir eru að bráðna, þetta eru hörfandi jöklar,“ segir Íris María.
„Eitthvað sem við ættum að vera að tala um“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta