„Stemningin er spennuþrungin og maður finnur betur fyrir því þegar maður fylgist með fjölmiðlunum hér. Þetta er klofin þjóð og maður upplifir hana þannig þótt við séum í blárri búbblu hér í þessari litlu háskólaborg,“ segir parið Halla Hauksdóttir og Flóki Larsen sem eru búsett í Íþöku í ofanverðu New York-fylki í um fjögurra klukkustunda keyrslu frá stórborginni. Blaðamaður ræddi við þau um lífið í Bandaríkjunum.