Áströlsk yfirvöld hyggjast hækka útgjöld til varnarmála upp í þrjú prósent af landsframleiðslu fyrir árið 2033. Fyrra markmið var 2,3 af hundraði.Ástralska stjórnin segir ástæðu hækkunarinnar tengjast stríðsátökum um allan heim auk þess sem Bandaríkjastjórn hefur þrýst á um hækkun útgjalda til varnarmála. Stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth krafðist þess í fyrra að Ástralir hækkuðu útgjöldin í 3,5 prósent.Ástralski varnarmálaráðherrann Richard Marles segir tekið að molna undan alþjóðlegum reglum sem áður hömluðu notkun valds og hernaðarmáttar. „Ekki hafa fleiri lönd um veröld alla átt í stríði síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk,“ segir Marles.Ástralir hafa styrkt eldflaugavarnir sínar undanfarin ár sem viðbragð við stækkun herskipaflota Kína. Auk þess hefur þjónustumiðstöð fyrir kjarnorkuka