Líkurnar á að þotueldsneyti gangi til þurrðar aukast með hverjum degi sem Hormússund helst lokað. Erfitt er að spá um hvenær birgðir klárast, að mati sérfræðinga. Hættan á eldsneytisskorti er mest í ríkjum Asíu og í ögn minna mæli í Evrópuríkjum, sem að stórum hluta reiða sig á olíuafurðir frá ríkjunum við Persaflóa. AFP-fréttaveitan segir litlar birgðir á Íslandi, Bretlandi og í Hollandi. Staðan sé betri í Póllandi, Búlgaríu, Austurríki og Frakklandi. Japanir hafa komið sér upp digrum forða enda reiða þeir sig algerlega á innflutta olíu. DREGIÐ GÆTI ÚR FLUGFERÐUM ÞEGAR Í MAÍ EÐA JÚNÍ Dregið gæti verulega úr flugferðum í maí eða júní, að mati orkuhagfræðingsins Claudio Galimberti sem var í viðtali á fjármálastöðinni CNBC í gær. Hann sagði fjölda flugferða þegar hafa verið frestað í Evró