Írski sjónvarpsþáttaframleiðandinn Lelia Doolan, sem verður 92 ára í næsta mánuði, gekk 220 kílómetra leið þvert yfir landið til að mótmæla því að bandarískum herflugvélum væri heimilað að lenda á Shannon-flugvelli á vesturströndinni án þess að ríkisstjórnin krefðist þess að vita hver farmur þeirra væri.Það væri brot á hlutleysisstefnu Írlands auk þess sem völlurinn væri eingöngu ætlaður til borgaralegrar notkunar. Doolan gekk nánast alla leiðina og var vel fagnað af stuðningsfólki og þingmönnum stjórnarandstöðunnar þegar hún kom til Leinster, sem hýsir báðar deildir þingsins.Ríkisstjórnin þvertekur fyrir að Bandaríkjamenn noti flugvöllinn í hernaðarskyni og engar vísbendingar séu um að vopn eða önnur tæki til hernaðar séu um borð í flugvélum þeirra.Doolan lagði af stað frá Shannon 31. mar