Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ný lög banna uppbyggingu stórra gagnavera í Maine tímabundið

Bæði fulltrúadeild og öldungadeild löggjafarþings Maine í Bandaríkjunum samþykktu í gær frumvarp til laga sem stöðvar tímabundið uppbyggingu stórra gagnavera í ríkinu.Melanie Sachs, aðalflutningsmaður frumvarpsins, segir í samtali við AFP þingið hafa með þessu brugðist við ákalli almennings og byggðarlaga sem óttast alvarleg áhrif veranna á orkukostnað, raforkukerfið sjálft og umhverfið.Sveitarfélögum verður ekki heimilt að leyfa byggingu vera sem þurfa meira en 20 megawatta orku, samkvæmt ákvæðum laganna. Hröð þróun gervigreindar hefur leitt af sér mikla þörf fyrir voldug gagnaver, sem hafa sprottið upp eins og gorkúlur víða um Bandaríkin. MILLJÖRÐUM VARIÐ Í UPPBYGGINGU GAGNAVERA Tæknifyrirtæki verja milljörðum dala í uppbyggingu gagnavera enda vilja þau öll verða leiðandi á sviði gerv
Ný lög banna uppbyggingu stórra gagnavera í Maine tímabundið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta