Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild að Evrópusambandinu nú en fyrir ári síðan miðað við árlega könnun sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið. 46 prósent segjast vera andvíg aðild í dag en sá fjöldi var 39,8 prósent þegar könnunin var framkvæmd á svipuðum tíma í fyrra. Þá hefur stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ekki mælst hærri.