Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæðiArion banka og Kviku banka. Fulltrúar bankanna tveggja funduðu með Samkeppniseftirlitinu í dag og að forviðræðum loknum var afstaða Samkeppniseftirlitsins kynnt. Stjórnir bæði Arion og Kviku banka töldu að ekki gæti orðið af samruna bankanna í ljósi afstöðu Samkeppniseftirlitsins. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vera vonbrigði og koma á óvart. „Mikil og vönduð vinna var lögð í forviðræður við Samkeppniseftirlitið og lögðu félögin fram margvíslegar lausnir til að stuðla að virkri og öflugri samkeppni á fjármálamarkaði.“Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir að mikil vinna hafi farið í forviðræður bankanna