Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lífrænn úrgangur verður að mold á örskotsstundu

Óheimilt er að henda lífrænum úrgangi með almennu heimilissorpi og olli það Þingeyingum töluverðum vandræðum þegar kom að flokkun úrgangs. Þingeyjarsveit er eitt stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli og er sorphirðuhringurinn sem keyra þarf rétt um 1400 kílómetrar.Til þess að bregðast við því var farin nýstárleg leið og íbúum sveitarfélagsins boðið að jarðgera sinn eigin lífræna úrgang með FoodCycler vélunum sem sveitarfélagið niðurgreiðir.Vélin, sem er á stærð við AirFryer-ofn, býr til næringarríka mold sem má nota í ýmislegt, á undraverðum tíma.
Lífrænn úrgangur verður að mold á örskotsstundu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta