Fyrirhugaðar breytingar menntamálaráðherra á námsmatskerfi grunnskóla eru bæði óábyrgar og bera vott um þekkingarleysi, segir formaður Kennarasambands Íslands. Hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort á samráði. BREYTINGARNAR SVAR VIÐ ÁKALLI FORELDRA Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hélt erindi á þingi Kennarasambands Íslands í morgun, þar sem hún tilkynnti breytingar á námsmatskerfi grunnskóla.„Jafnframt tel ég eðlilegt að við notum, hérna, nú kemur það nú kemur það, bíðið þið, haldið ykkur, haldið ykkur fast, að við notum tölustafi í einkunnagjöf eins og tíðkast í framhaldsskólum og háskólum, en ekki bókstafi eða önnur form svo sem liti sem getur verið erfitt að skilja.“Inga segir breytingarnar viðbrögð við ákalli foreldra. Í skoðanakönnun sem gerð hafi verið fyrir skömmu hafi