Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þeir sem þurfa aðstoð í Súdan myndu fylla 3 þúsund Laugardalsvelli

Þrjú ár eru síðan blóðug borgarastyrjöld braust út í Súdan, sem ekki sér fyrir endann á. Tugmilljónir eru á flótta og þurfa mataraðstoð – í verstu mannúðarkrísu heims um þessar mundir.Tveir herforingjar hafa síðastliðin þrjú ár gleypt þetta eitt stærsta land Afríku í sig.Á milli lenda þær 50 milljónir manna, sem kalla Súdan heimkynni sín. Talið er að á bilinu 150 til 400 þúsund manns hafi verið drepnir víðs vegar um landið.Um tveir þriðju íbúa eru á flótta og að minnsta kosti 28 milljónir manna þurfa á mataraðstoð að halda. Langflestir þeirra búa við alvarlega vannæringu.Með 28 milljónum manna væri hægt að fylla báðar stúkurnar á Laugardalsvelli um þrjú þúsund sinnum.28 milljónir manna er um 71 sinni íslenska þjóðin og er svipaður fjöldi og býr á öllum Norðurlöndum.
Þeir sem þurfa aðstoð í Súdan myndu fylla 3 þúsund Laugardalsvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta