Ný nálgun í öryggismálum er inntak ráðstefnu sem Samorka heldur í dag. „Öryggismál hafa lengi verið áherslumál í orku- og veitugeiranum og góður árangur náðst þar. Og nú er sjónum í ríkari mæli beint frá fólki að þeim aðstæðum sem geta átt þátt í að alvarleg atvik gerist,“ segir Katrín Helga Hallgrímsdóttir lögfræðingur Samorku.