Forseti Íslands og forseti Slóveníu hittust í dag í tengslum við árlegt Velsældarþing sem hefst í Reykjavík á morgun. Þróun heimsmála var í brennidepli og forystuhlutverk í breyttum heimi.„Við höfum báðar í okkar störfum lagt mikla áherslu á samtalið. Í heimi þar sem traust er kannski þverrandi og upplýsingaóreiða mikil þá þurfum við að hafa hugrekki til þess að tala um það sem skiptir máli og gera það í einlægni og skiptast á skoðunum,“ segir Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.Síðdegis var opinn fundur í Veröld – húsi Vigdísar Finnbogadóttur, sem fagnar 96 ára afmæli í dag. Þar ræddu forsetarnir þær leiðir sem leiðtogar, ekki síst kvenleiðtogar, hafa til að láta gott af sér leiða, jafnt heima sem á alþjóðavettvangi. „Konur hafa aðra sýn á heimsmálin og leggja mikið upp úr virku samtali,