Oddvitar framboðanna sex í Mosfellsbæ mættust í kvöld í oddvitaumræðum RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí.Höskuldur Kári Schram og Anna Lilja Þórisdóttir stýra umræðunum. Blikastaðaland var oddvitunum ofarlega í huga, auk samgöngumála, efnahagsmála og vaxtaverkja vegna fjölgunar íbúa.Mosfellsbær er sjöunda stærsta sveitarfélag landsins með tæplega 14 þúsund íbúa. Sex flokkar bjóða fram í vor.Þátttakendur í oddvitaumræðunum í Mosfellsbæ eru: * Hilmar Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins. * Gylfi Þór Þorsteinsson, oddviti Viðreisnar. * Ómar Ingþórsson, 3. sæti hjá Samfylkingu (staðgengill oddvita). * Árni Jónsson, oddviti Vina Mosfellsbæjar. * Sævar Birgisson, oddviti Framsóknar. * Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins.