Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Breiðafjarðarferjan Baldur leysir Herjólf af í næstu viku

Vegna bilunar um borð í Herjólfi verður ferjan ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja dagana 20. og 21. apríl.Fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi OHF að eftir skoðun sérfræðings þurfi að senda rafmótor ferjunnar utan til viðgerðar.Breiðafjarðarferjan Baldur leysir af og siglir samkvæmt áætlun Herjólfs þessa daga. Auk þess mun Baldur sinna gámaflutningum á nóttunni.Gert er ráð fyrir að Herjólfur verði aftur kominn í áætlun á miðvikudaginn 22. apríl og mun hann sigla til Landeyjahafnar um leið og aðstæður leyfa.Engar breytingar verða á siglingaáætlun Herjólfs.Vegagerðin
Breiðafjarðarferjan Baldur leysir Herjólf af í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta