Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forsendur til staðar til að draga úr vægi verðtryggingar

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að samstaða og stöðugleiki sé nauðsynlegur til að draga úr vægi verðtryggingar líkt og ríkisstjórnin stefnir að fyrir árslok.„Hluti af vandamálinu okkar, hluti af þessum verðbólguvæntingarvandamálum okkar er að verðtryggingin er svo útbreidd að verðbólga veldur verðbólgu og það er vítahringur sem við þurfum að rjúfa,“ sagði Daði á degi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag.„En svo er það þetta: til þess að geta rofið hann þurfum við stöðugleika. Ef ég segði við ætlum að afnema verðtrygginguna á þriðjudaginn í næstu viku þá yrði algjört uppþot á markaði, fullkomin óvissa og það væri hrikalega vond hugmynd.“Daði segist meðvitaður um að ríkið þurfi að stíga ákveðin skref.„Ég held líka að það sé mikilvægt að byrja að vinda ofan a
Forsendur til staðar til að draga úr vægi verðtryggingar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta