Það var líf og fjör í Breiðholtsskóla í morgun þegar VÆB bræður mættu til að frumflytja lag Barnamenningarhátíðarinnar. Hátíðin hefst í næstu viku og er áætlað að hátt í 10 þúsund börn taki þátt í dagskrá hennar. Þema hátíðarinnar í ár er „Samkennd og samfélag“.Texti lagsins byggir á svörum nemenda í 4. bekk í Reykjavík sem fengu það verkefni að skilgreina samkennd og samfélag. Krakkarnir tóku líka lagið áður en bræðurnir stigu á svið.VÆB munu flytja lagið aftur á opnun Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu þann 20. apríl næstkomandi. Hátíðin stendur til 26. apríl.