Fjórtánda tímabil tölvuleiksins Fortnite Festival verður tileinkað íslensku söngkonunni Laufeyju Lin Jónsdóttur. Þá var einnig tilkynnt sú nýjung á heimasíðu Fortnite að mögulegt verði að syngja með á þessu tímabili með því að tengja hljóðnema við tölvuna.Leikurinn skiptist í tímabil þar sem hvert tímabil er tileinkað einum tónlistarmanni. Á morgun hefst 14. tímabil tölvuleikjarins og bætist Laufey í hóp með stjörnum á borð við The Weeknd, Lady Gaga, Bille Eilish og Metallica sem hafa verið hluti af eldri tímabilum.Laufey gaf út lagið Madwoman fyrir fimm dögum síðan sem notað verður í leiknum og gefst spilurum kostur á að taka lagið sem þegar hefur verið spilað 5 milljón sinnum á Youtube.Sjá má kynningarmyndband hér fyrir neðan.Leikurinn Fortnite Festival var gefinn út árið 2023. Hann var