Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

BBC fækkar störfum um 2.000 á næstu tveimur árum

BBC, breska ríkisútvarpið, ætlar að fækka störfum um allt að 2.000 á næstu tveimur árum. Þetta er mesti niðurskurður hjá fjölmiðlinum síðustu 15 ár. Um 10 prósent starfsmanna missa vinnuna við uppsagnirnar sem tilkynnt var um á starfsmannafundi.The Guardian hefur eftir Philippu Childs, formanni Bectu, stéttarfélags fjölmiðlafólks, að verði frekari niðurskurður skerði það getu BBC til að sinna skyldum sínum. Hún segir stjórnvöld verða að tryggja fjármögnun BBC til framtíðar. BBC greindi frá því í mars að tekjur af útvarpsgjaldi hafi minnkað um 24 prósent síðan 2017. Merki BBC.EPA / ANDY RAIN
BBC fækkar störfum um 2.000 á næstu tveimur árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta