Íslensk stjórnvöld hafa staðfest aðild sína að samningi um að koma á fót stjórnarnefnd sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn friði í Úkraínu á vettvangi Evrópuráðsins. Hlutverk stjórnarnefndar verður að hafa umsjón með rekstri dómstólsins og tryggja aðgang að nauðsynlegri fjármögnun.