Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Mark Rutte, hvatti aðildarríkin í dag til að missa ekki sjónar á stríðinu í Úkraínu og auka við framlög sín til stuðnings landinu. „Við verðum að tryggja að við getum veitt óhindraðan stuðning til Úkraínu. Við megum ekki missa sjónir á Úkraínu,“ sagði hann á fundi varnarmálaráðherra helstu bandamanna Úkraínu í Berlín í dag.Stríð Bandaríkjanna og Ísraels í Mið-Austurlöndum hefur fengið mikla athygli síðustu vikur og eru vaxandi áhyggjur innan Úkraínu að stuðningur bandamanna dvíni. Viðræður milli Úkraínu og Rússlands um stríðslok, sem Bandaríkin hafa haft milligöngu um, hafa engan árangur borið. Eftir að Donald Trump tók við völdum hafa Bandaríkin dregið verulega úr stuðningi sínum við Úkraínu.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hafði orð á því í g