RVK Bruggfélag efndi til nafnasamkeppni um stóran snjóskafl á bílastæða Tónabíós á dögunum. Í dag var hátíðleg stund þegar skaflinum var gefið nafnið Ölæfajökull.Nafnið var valið úr tæplega 400 tillögum sem bárust og samkeppnin var hörð, að því er segir í tilkynningu. Í umsögn dómnefndar kemur fram að nafnið fangi bæði staðsetningu skaflsins og tíðarandann, og örlitla vísun í hlýnandi heim. Eins og sjá má á myndunum af skaflinum hefur hann minnkað töluvert síðan efnt var til nafnasamkeppninnar í síðustu viku.„Ölæfajökull rís nú stoltur á útisvæði RVK. Tímabundinn að vísu, en ógleymanlegur.“Samsett mynd af Ölæfajökli í síðustu viku og í dag.RVK Brugghús