Bæjarstjórn Grindavíkur lýsir yfir áhyggjum af þeim hugmyndum að fresta eigi skólahaldi í bænum næsta haust. Þá standi möguleg mismunun við endurkaup eigna eftir fjölskyldugerð í vegi fyrir eðlilegri framþróun sveitarfélagsins.Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem bæjarstjórnin sendi frá sér í dag.Til stóð að skólahald myndi hefjast í bænum í haust en á föstudaginn lýsti Grindavíkurnefndin því yfir að hún mældi ekki með því að barnafjölskyldur myndu snúa aftur í bæinn á meðan óvissa varir vegna jarðhræringa.„Við teljum mikilvægt að treysta dómgreind Grindvíkinga þegar kemur að ákvörðunum um þeirra eigin mál og endurkomu heim. Skólastarf er algjör grunnforsenda til að gera barnafjölskyldum kleift að snúa aftur, enda hefur alltaf verið eftirsóknarvert að ala upp börn í bænum okkar,“ segir í yfi