Það er nóg að gera hjá Erling Brim bólstrara og afastráknum Pétri.Á verkstæði Boggubólstrunar í Ytri-Njarðvík standa stólastæður og áklæðarúllur af ýmsum toga. Erling Brim komst á bragðið hjá Boggu vinkonu sinni. Þau störfuðu saman um tíma en hún lést af slysförum fyrir aldur fram. Verkstæðið fékk nafnið Boggubólstrun og dafnar vel, enda er verkefnalistinn nokkuð langur.Skemmtilegast finnst Erling að vinna með gamla stóla. Eftirminnilegt þótti honum að gera upp tvo stóla úr gömlu dönsku póstskipi sem strandaði við Skagaströnd árið 1916. „Það er frekar hægt að bjarga eldri húsgögnum, því þau voru betur smíðuð í gamla daga. Þetta er ekki eins vandað í dag.“„Einnig er gaman að sjá hvað fólk hefur misjafnan smekk á áklæðum og það eru tískustraumar í því eins og öðru.“