Borgarbyggð og Skorradalshreppur kalla eftir skoðunum íbúa á hvaða nafn sameinað sveitarfélag eigi að hafa. Ráðgefandi íbúakosning hófst í dag og stendur til og með 27. apríl. Allir sem hafa náð 16 ára aldri og hafa lögheimili í sveitarfélögunum geta kosið á vefnum í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar.Íbúum er boðið að velja milli þriggja kosta, hvort sveitarfélagið eigi að heita Borgarbyggð, Skorradalshreppur eða eitthvað annað. Kosningin er ráðgefandi en ekki bindandi. Kosið verður í sameinuðu sveitarfélagi í fyrsta sinn í maí og það kemur í hlut nýrrar sveitarstjórnar að taka endanlega ákvörðun um nafnið. Kosið verður í fyrsta sinn í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepp í maí.RUV.IS / Jóhannes Jónsson