Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vilja leyfa hafnargerð vestan við Grundartanga

Ný stórskipahöfn gæti risið skammt vestan við Grundartanga ef fyrirhuguð breyting sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar á aðalskipulagi gengur eftir. Þar er lagt til að athafnasvæði við Galtarlæk verði stækkað og nýtt hafnarsvæði skilgreint neðan athafnasvæðisins.Breytingartillagan gerir ráð fyrir að athafnasvæðið nái alveg upp að þjóðveginum við Akrafjall. Höfnin gæti þjónustað flutningaskip og stór skemmtiferðaskip.Í auglýsingu sveitarfélagsins um breytinguna segir að höfnin á Grundartanga sé nokkuð ásetin og full að minnsta kosti hluta úr viku vegna starfsemi á iðnaðarsvæðinu þar og eigi þörf fyrir þjónustu hennar eftir að aukast.Nýja höfnin myndi gagnast starfsemi á nýja athafnasvæðinu sem krefðist beins aðgangs að hafnaraðstöðu, segir í auglýsingunni. Hafnargerðin er sögð tæknilega hagkv
Vilja leyfa hafnargerð vestan við Grundartanga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta