Í netsölu getur falist smásala. Þó að sala á netinu hafi ekki tíðkast þegar áfengislög voru sett á sínum tíma þá nær einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis líka til netsölu þegar áfengi er selt og ætlað til einkaneyslu.Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir Vilhjálmi Forberg Ólafssyni, eiganda og framkvæmdastjóra Smáríkisins. Hann var á dögunum dæmdur að greiða 100 þúsund króna sekt ella að sæta fangelsi í átta daga fyrir brot á áfengislögum. FYRIRKOMULAG TIL ÞESS GERT AÐ KOMAST FRAMHJÁ EINKALEYFI ÁTVR Vilhjálmur var sóttur til saka fyrir sölu á einum 3000 ml belg af hvítvíni sem seldur var í gegnum vefsíðu Smáríkisins og afhentur af Wolt-sendli. Hann var með sölunni fundinn sekur um að hafa brotið gegn einkaleyfi Áfengis og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) til smásölu áfengis á