Dómsmálaráðuneytinu var ekki skylt að verða við beiðni RÚV um aðgang að öllum gögnum sem tengdust starfslokum Helga Magnúsar Gunnarssonar, fyrrverandi vararíkissaksóknara. Ráðuneytið hafnaði upplýsingabeiðninni vegna þess að ekki væru veittar upplýsingar um einstök starfsmannamál eða einkamál starfsfólks.Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá því fyrr í mánuðinum. Ráðuneytinu var þó gert að láta af hendi fylgigögn með gerð úttektar á starfsumhverfi hjá embætti ríkissaksóknara en ekki úttektina sjálfa. LANGUR AÐDRAGANDI STARFSLOKA Í talsverðan tíma stóð styr um stöðu Helga Magnúsar hjá embætti ríkissaksóknara. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hafði sent hann í leyfi og farið fram á það sumarið 2024 að hann yrði leystur frá störfum tímabundið en Guðrún Ha