Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verkföll hjá Lufthansa á afmælisdegi flugfélagsins

Þýska flugfélagið Lufthansa hefur þurft að fella niður hundruð flugferða í vikunni vegna verkfalla flugmanna og flugfreyja. Flugmenn lögðu niður störf í tvo daga í byrjun vikunnar og hafa boðað annað verkfall á miðnætti. Flugfreyjur hafa boðað verkföll tvo daga í vikunni.Helstu ágreiningsefnin eru samningar um eftirlaun. Stéttafélögin Vereinigung Cockpit, VC, og UFO Cabin Crew skipulögðu verkföllin. VC vill að deilan fari fyrir gerðardóm.Hundrað ár eru í dag síðan Lufthansa var stofnað og verða hátíðahöld af því tilefni í höfuðstöðvum fyrirtækisins á flugvellinum í Frankfurt. Stéttafélögin hafa boðað til mótmæla við höfuðstöðvarnar í dag.AP / Matthias Schrader
Verkföll hjá Lufthansa á afmælisdegi flugfélagsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta