Í bókinni Grænland og fólkið sem hvarf veltir sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson upp ráðgátunni um dularfullt hvarf heillar siðmenningar á Grænlandi, norrænnar byggðar sem fyrirfannst fyrir 500 árum. Bókin er bæði ferðasaga og sagnfræðirit.„Þetta er í þessum blaðamannabókastíl. Hann er svolítið að skrifa um sig á ferðalagi og jafnframt skoða staðina sem hann kemur á og sögu þeirra langt aftur í aldir,“ segir Þorgeir Tryggvason gagnrýnandi Kiljunnar. „Þarna er hann staddur á Grænlandi í, að er virðist, einhvers konar tilraun til að ná að fóta sig í lífinu; borða minna, drekka minna og koma sér í einhvers konar form.“„Til þess leitar hann til Stefáns, hins fræga hreindýrabónda, og er þar undir hans verndarvæng og fjölskyldu. Hann er að skrifa um samskiptin við þau en jafnframt af blaðamannafo