Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir þeirra handteknu sagðir vera starfsmenn Eimskips

Þrír hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í umfangsmiklu fíkniefnamáli. Samkvæmt heimildum fréttastofu Sýnar eru tveir af þeim þremur sem sæta gæsluvarðhaldi starfsmenn Eimskips.Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs Eimskips, segir að málið sé á borði lögreglu en að hún vilji ekki tjá sig um það að öðru leyti. Harpa staðfestir þó að lögreglan hafi verið í Sundahöfn í gær.Alls voru sex handteknir í aðgerðum lögreglu í gær en þremur þeirra hefur verið sleppt úr haldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV eru mennirnir grunaðir um að smygla fíkniefnum til landsins með Dettifossi.
Tveir þeirra handteknu sagðir vera starfsmenn Eimskips

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta