„Mesti innblásturinn í mínu lífi hefur alltaf verið amma mín,“ segir hin 25 ára gamla Nadía Sif Líndal Gunnarsdóttir, áhrifavaldur, tískuáhugakona og fyrirsæta. Nadía vinnur í tískuvöruversluninni Nínu á Akranesi og hefur sömuleiðis tekið að sér ýmis verkefni tengd markaðssetningu. Hún byrjaði að sitja fyrir þegar hún var sextán ára gömul og elskar að klæða sig upp fyrir öll tilefni.