Borgarstjórn hefur samþykkt að taka gjaldsvæði bílastæða og útfærslu gjaldskyldu til endurskoðunar. Á meðal þess sem verður endurskoðað er gjald á gjaldsvæði P1 og þá verður ráðist í að breyta hluta svæða P2 í P3, þar sem ekki er gjaldskylda um kvöld og helgar.