Borgarstjórn samþykkti í dag að taka gjaldsvæði bílastæða og útfærslu gjaldskyldu til endurskoðunar.Á fundi borgarstjórnar var einnig samþykkt að farið yrði í heildarendurskoðun á verklagsreglum sem varða breytingar á stækkun gjaldskyldusvæða eða útfærslu á verðlagningu og tímamörkum sem þeim fylgja hverju sinni.Í tilkynningu Reykjavíkurborgar kemur fram að gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar og að jafnframt verði ráðist í að breyta hluta svæða P2 í P3 þar sem ekki er gjaldskylda um kvöld og helgar.Auk þessa verður útfærsla gjaldskyldu á sunnudögum tekin til endurskoðunar á íbúasvæðum með það að markmiði að gera íbúakort sveigjanlegri. Loks verður ráðist í markvissa kynningu á bílastæðum Reykjavíkurborgar og aðgengi að þeim. Hvað kostar að leggja bílnum í Reykjavík? P1: 660 krónur