Hér fer fram bein textalýsing frá leik fjögur í einvígi Njarðvíkur og Grindavíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Flautað verður til leiks í Icemar höllinni í Njarðvík klukkan sjö. Einvígið stendur 2-1 fyrir Grindavík sem getur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri í kvöld.Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2.