Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrír í gæsluvarðhald vegna gruns um innflutning á verulegu magni fíkniefna

Þrír hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum, að sögn lögreglu.Sex voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglu í gær. Tveir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær og einn í dag. Þremur var fljótlega sleppt úr haldi.Málið varðar innflutning á verulegu magni af sterkum fíkniefnum. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru mennirnir grunaðir um að smygla fíkniefnum til landsins með Dettifossi.Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að rannsóknin sé á viðkvæmu stigi og að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um rannsókn málsins að svo stöddu.
Þrír í gæsluvarðhald vegna gruns um innflutning á verulegu magni fíkniefna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta