Fjármálaráðherra segir að fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sé grunnurinn að lækkun vaxta og bættum lífskjörum. Umræða um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hófst á Alþingi í dag.Umræðan stendur yfir í tvo daga þar sem fjármálaráðherra mælir fyrir áætluninni og fer yfir stóru myndina en á morgun mæta fagráðherrar og tala fyrir sínum málaflokkum.Áætlunin var kynnt í lok mars og voru helstu tíðindin þau, gangi áætlunin eftir, er að ríkissjóður verður rekinn með milljarðs afgangi. Yrði það þá í fyrsta sinn síðan 2018 sem ríkissjóður er rekinn með afgangi. „Með þessari áætlun sendum við skýr skilaboð: Ríkisstjórnin stendur við sín markmið. Það er forsenda þess að vextir lækki og lífskjör batni,“ sagði Daði Már í flutningsræðu sinni.Stjórnarandstaðan lítur áætlunina ekki jafn björtum augum og fj