Sendiherrar Líbanons og Ísraels sitja á fundi í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington. Marco Rubio, utanríkisráðherra, leiðir viðræðurnar. Fyrir fundinn hvatti hann ríkin til að nýta tækifærið, sem hann sagði sögulegt, til að semja um frið. Forseti Líbanons, Joseph Aoun, sagðist í yfirlýsingu í dag vona að viðræðurnar yrðu til þess að lina þjáningar Líbana, sérstaklega í suðurhlutanum. Ekki verði komið á stöðugleika ef Ísrael haldi áfram að hertaka hluta landsins. Hezbollah í Líbanon, sem eru bandamenn Írana og hafa barist við Ísraelsher í suðurhlutanum, leggjast gegn viðræðunum. Sendiherra Líbanons í Bandaríkjunum Nada Hamadeh Moawad, í miðjunni, á leið á fund í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í dag.EPA / /LUKE JOHNSON